já ættla hér með að reyna að blogga.... humm? jú jú á Þriðjudaginn seinasta dreif ég mig á fótboltaæfingu, og á leiðinni heim þá heyrði ég þarna Euorovision lagið sem Regína söng í fyrra og þegar óperu kaflinn kom þá hugsaði ég um þegar Íris Gríms var alltaf að taka óperu..:D hehe En já svo var auðvitað öskudagurinn alltaf jafn gaman á öskudeginum... nema þetta ár tók ég þá ákvörðum að sleppa að fara til húsavíkur og synjar..en fara í partý til Sigrúnar Helgu var það rosa gaman.. En væri samt mjög gaman að eiga núna nammi...:S en þegar ég var búin að vera hjá Sigrúnu þá fór ég til Gumma.þar voru Brynjar, Bjarki, Íris, Hrannar, Sigríður og Anna D var það allveg snild við byrjuðum að horfa á mynd...:D og fá okkur snak og pizzu í kvöldmat:D en svo nenntum við ekki að klára myndina svo við ákváðum að skella okkur aðeins út á eitthvað svell með einhven bíl sem Brynjar vildi taka með var það allveg ágætt.. þangað til að Brynjar, Bjarki og Gummi fóru eitthvað að stríða okkur stelpunum vegna þess að það var allt svo drungalegt þarna að þeir fóru að fela sig og koma svo og bregða okkur... Tóks það samt aldrei hjá þeim, nema þegar við vorum öll eitthvað að tala saman læðist þá Gummi ekki burtu og felur sig svo við fórum eitthvað að leita af honum... Anna og Íris heyra allt í einu eitthvað hljóð frá kirkjugarðinum eins og það væri verið að draga spítu eftir veginum svona 2-3 sinnum svo þær fóru heim... En svo nenntum ekki að leita lengur svo við kölluðum að við værum farin inn... þá kom í ljós að hann hafi bara verið rétt við hliðin á okkur næstum allan tíman... hehe En já í gærkveldi var skellt sér á þorrablót í Ýdölum... STUÐ sko Inda var með mér við áttum að spila saman á fiðlu, síðan fórum við eitthvað á klósettið svona rétt áður en við vorum að fara baksviðs. svo heyri ég eitthvað svona að það væri verið að kalla á Strengjasveitina svo ég segi eitthvað við Indu að við þyrftum að drýfa okkur.. En var þá eitthvað að pilsinum hennar að við gátum ekki rennt upp.. svo hún fór baksviðs og þá var hún svo heppinn að handmenntakennarinn var þar og hún reddaði málum... hehe Síðan var bara dansað allt kvöldið... ekkert smá duglegar:D
En ættli þetta sé ekki bara gott í bili svo bara bæ...:D
- COMMENTA -
25. febrúar 2007 klukkan 00:27
Andrea Dögg Kjartansdóttir 20 athugasemdir
Fimmtudagur: já á fimmtudaginn þurfti ég að vakna eitthvað um sjö leitið vegna þess að ég var að fara að spila á marimba kl. 08.30...:/ smá snemma við vorum svo morgun fúl þegar við vorum að spila að það sást ekki bros á neinum okkar.. en já síðan fórum við eitthvað í skólan og þegar ég fór í smíðar var ég eitthvað svona að leita af því sem ég er að gera (svona armband:D).. ég var búin að leita og leita og fann það ekki....:/ svo lifti ég upp einhverju svona gler dæmi... og þar lá armbandið mitt ÓNÝTT einhver hefur tekið uppá því að snúa upp á það og eiðileggja það... leiðinlegt fólk sem gerir svona það var meiri segja búið að taka frá einhverjum úr neðstu bekkjunum og eitthvað rugl... En já var síðan skellt sér á video kvöld og bara stemming þar...
Föstudagur: skellti mér til Akureyrar til að hitta Ástu og Jóa.... þvíligt gaman ættluðum að baka pizzuna saman en var það nú ekki þannig vegna þess að Ásta var að fá net í tölvuna síðan þannig að ég bakaði hana bara ein... og viti menn hún varð bara góð.:D á laugardaginn fórum við í sund og síðan á Hamborgara búlla Tómasar..:D Tók jói síðan uppá því að fara í bíltúr inn eyjafjörðinn:S ekkert séstakt... en svo enduðum við þetta með að fara í Brynju og fá okkur bragðaref..:D
-> Fínt í dag sjáumst síðar..
11. febrúar 2007 klukkan 11:13
Andrea Dögg Kjartansdóttir 8 athugasemdir
já nú tók ég mér bísna langa pásu...:D en það er samt ekkert meira að frétta þótt ég taki svona pásu..:S en jú við vorum í dansviku núna þessa vikuna og enduðum þetta með loka sýningu (allveg snilld:D) en hannJón Pétur er allveg snillingur...:D En er að fara á eftir að spila fótbolta á Laugum og ættla að fara að taka mig til þannig ég ættla bara að hafa þetta stutt núna og bara segja ykkur að ég sé enn þá á lífi...:D
bæbæ
26. janúar 2007 klukkan 21:08
Andrea Dögg Kjartansdóttir 3 athugasemdir
Já núna er ég komin í jólafrí:D En um síðustu helgi fór öll fjölskyldan til akureyrar og kláraði að kaupa jólagjafirnar og jóla mat og alles. En þegar við komum heim fattaði pabbi að það átti eftir að kaupa allveg helling svo við fórum til Húsavikur i gær og versluðum og versluðum...:S en já komin heim eftir erfiðan dag:D Nei nei svo þegar ég vaknaði í dag sá ég að mamma var að krassa á einhvern miða inní eldhúsi og þá fór ég að spyrja hana hvað hún væri að gera? þá eigum við ennþá eitthvað eftir svo það er önnur húsavíkur ferð í dag...:S
En já í gærkveldi kom Inda i heimsókn og kom með jólagjöf til mín en ég gleymdi að láta hana fá sína þannig ég fer örugglega til hennar í dag...:D en þegar hún var farin fór ég að horfa á TV..:D og svo að tala við mömmu og pabba um Austurríkisferðina. En það er bara 12 dagar í hana:D vá hvað ég er spent.. En svo var ég orðin bísna þreitt svo ég fór og skreið undir hlýja sæng..:D ummm!! og sofnaði en sirka kl. 03:30 datt spegill niður af veggnum inni hjá mér..:S VAAAÁÁ hvað mér brá.. ég var svo hrædd að ég stökk strax framm en ég var ekker búin að fatta hvað hafði gerst svo ég fór inn til mömmu og hún kom og sagði mér að spegillinn hafði dottið en hann brottnaði ekki svo það var allt í lagi...:D
En ættli ég hafði þetta ekki bara nóg í bili svo GLEÐILEG JÓl
23. desember 2006 klukkan 17:37
Andrea Dögg Kjartansdóttir 4 athugasemdir
Er búin með prófin og fer bara að stittast í jólafrí..:D
Í gær var langur dagur í skólanum.. stuð sko það var sungið í sing star, borðtennis og auðvitað dragkónga keppni snild Anna Dís vann, Hjördís í 2. og Sigríður í 3. kemur mynd seinna.... en eftir kvöldmat þurftu kennararnir að byrja að vera leiðinlegir... og við máttum ekki gera neitt svo krakkar fóru bara að tínast heim... en sumir héldu áfram að tuða.. og það gekk..!!
En já í dag er frí í skúlanum og ég hef ekki mikið að gera sko... snjósleðinn er eitthvað bilaður og hann fer ekki í gang í dag.... svo ég ættla bara eitthvað að láta mér leiðast hér í tövunni áfram..
en ættli þetta sé ekki bara fínt núna... kveð í bili
13. desember 2006 klukkan 20:29
Andrea Dögg Kjartansdóttir 5 athugasemdir
já ég er nú ekki allveg að standa mig svona fyrst... En þessi blessuðu próf eru byrjuð en er búin með 2 af 7. er búin að vera að læra fyrir stær. í dag sem bara gengur vel ég held að ég skil þetta allt (nema kanski rými) en ég vona að ég sé bara í góðum málum..
En mamma og pabbi eru að fara á eitthvað jólahlaðborð í kvöld ég veit ekki hvort ég á að vera ein heima eða að fara eitthvað... en hún Anna Dís þurfti auðvitað að skella sér til rvk núna þannig ekki get ég hitt hana...!!
en ættli ég hafi þetta ekki bara stutt núna en commenta svo... bless
08. desember 2006 klukkan 00:09
Andrea Dögg Kjartansdóttir 3 athugasemdir